Þankar Húdý
Family picture gallery
Klukkan
18.11.2011 10:38:28 / huldab

Gabríel 2 ára í dag

18.nóvember 2009

 

Gabríel er 2 ára í dag.

Hann elskar golf og bíla. Kyssir stelpur (sem eru yngri en hann með þvílíkum stút). Hann er glaðlindur og er kallaður laumufarþeginn á heimilinu.

Hann dillar sér eins og Hvolpur þegar hann er glaður. Hann er mjög hraustur og finnst rosalega gott að sofa.

Hann er farinn að tala mikið. Hann sleppir ,,S" inu..  Jund (sund) og hann segist heita Bages.

 

 

Maron Bróðir var rosalega glaður að fá afmælisprins á þessum degi.. Til lukku með afmæilð gamli. :)

Ég var nú nærri búin að gleyma afmælinu. Pabbinn reddaði gjöf, á leið heim úr fótbolta.

En annars er allt gott að frétta, meira að gera en vanalega. Þegar það kemur skemmtilega á óvart að það sé starfsdagur í leikskólanum (eins og gerðist í gær).. = þá er mikið að gera hjá manni.. :) Hhhiiiii....  Ekki það að ég hafi ein lent í því.. ég hringdi í Katrínu systur og hún vissi ekki af starfsdeginum.. :) :) Þegar ég sótti krúttið voru margir foreldrar í flækju því þau voru að frétta af starfsdeginum þá.!!...

Margrét og Baldur eru að passa afmælisbarnið núna. Hann er í góðu yfirlæti. Mamman hringir á klukkutíma fresti.

Margrét, Baldur og Mikael fengu rosalega góðar einkunnir úr skólanum.

Kveðja

Húdý og herinn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2011 17:10:49 / huldab

Mikael 6 ára, Gabríel laus við gifsið

Hæ hæ..

Það er allt gott að frétta af fjölskyldunni.

Fjölskyldufaðirinn er búin að skrá sig í Cross fitt í október. Hann fer á nóttunni eða 6.10 2x morgna og á siðsamlegum tíma á laugardagsmorgnum. :)

Mamman býr sig nú undir aðgerð á ökla í sjötta eða sjöunda skiptið. (Íþróttameiðsl) og er gert ráð fyrir því að fara undir hnífinn í desember.

Mikael er byrjaður í skóla og finnst það ÆÐI-slegt hoppar og skoppar brosandi út alla morgna. Hann vildi samt um daginn vera rekinn úr skólanum. Ég spurði.. ,, af hverju Mikael"?  Nú svo ég fái að hitta skólastjórann. Ég sagði við hann að hann gæti nú alveg bankað hjá henni og heilsað upp á hana. :)
Hann varð svo 6 ára í gær og við héldum afmæli í Krakkahöllinni í Krepputorgi .) það gekk stórslysalaust fyrir sig en ég verð að viðurkenna að á tímabili þegar 3 krakkar úr bekknum hans komu grátandi þá var ég farin að efast um að þetta hefði verið góð hugmynd. En Katrín ofursystir mín hjálpaði mér með afmælið og þetta gekk allt vel. Litli 6 ára guttinn fór svo sáttur að sofa.

Gabríel fékk ,,nýtt rúm" í gær, eða útpissaða rúmið sem Baldur og Mikael hafa verið í.. dýnan hefur nú verið smúluð og þurrkuð og litli prinsinn svaf í því í gærkvöldi. Krúttið var mjög sáttur við nýja rúmið og kom 12 sinnum fram. Honum fannst rosalega spennandi að geta komið fram. Ég beið svo fyrir utan. Svo heyrðist brak þá var litli kúturinn að læðast og kíkja, hljóp svo hlægjandi  til baka. Svo gafst hann upp og sofnaði.. :) Hann var svo laus við gifsið í dag. Hann braut hendina fyrir 3 vikum og var laus í dag. Hann setti voða stút á munninn og kyssti lækninn. Hann var svo glaður með hann að hann gaf honum 2 verðlaun fyrir kossinn. :)

Margrét er að verða 11 ára í desember og henni finnst skólinn alveg yfirþyrmandi. Mikill lærdómur og mikið strit. Hún er í fimleikum og handbolta þennann veturinn. Hún keppir með 5.flokk yngri og 6.flokk eldri. Á síðustu helgi var hún að keppa með 5.flokki eldri. Stelpur fæddar '98 eða tveimur árum eldri voru að bomba á hana. Hún stóð sig alveg með prýði og lentu Fylkisstelpur í 3 sæti á Reykjavíkurmótinu. Hún varði víti og allt.. :) mamman er rosalega stollt af henni. :)

Baldur tók fyrsta samræmda prófið sitt í dag. :) Hann er duglegur stákur og æfir handbolta og fótbolta, og golf. Hann lenti í 2 sæti í Svalamótaröðinni í sumar og fékk bikar. Mamman klúðraði því  eiginlega að hann varð ekki í 1.sæti. því ég lét hann spila á rauðum teigum á fyrsta mótinu, en hann átti að spila á bláum sem eru teigar sem eru miklu styttri brautir. Svo ég tók þetta á mig.. Fyrirgefðu Baldur minn!.. :) en hann lenti í 2 sæti í því móti með 25 punkta á níu holum og hann tapaði 1.sætinu með 1.punkti.  svona er þetta bara.. :)

En nú sit ég heima með hita (jahér eins og litlu börnin ).. :) en eins og með allt annað ætla ég að hrista þetta af mér og mæta í vinnu á morgun.

Svo er afmæli fyrir Mikael á morgun, fjölskyldan, handboltamót, mömmuklúbbur svo fátt eitt sé nefnt um helgina. :)

Knús Húdý ungamamma..

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.06.2011 21:29:45 / huldab

Phhhúffffff..

Nei.. hæ.. þetta er ekki svo slæmt.

4 barna móðirin hefur það fínt. Krúttin hress og allir kátir. Margrét nýkomin frá Bretlandi. Bretlandsför Margrétar gekk bara vel. Hún fór yfir sig glöð til Englands, var eins og stormsveipur í búðunum. Fór í skólann með Katrínu frænku og Lególand. Hún kom svo heim klyfjuð gjöfum (sem bræður hennar eru spenntir að sjá) en taskan hennar hefur ekki skilað sér. Svo drengirnir þurfa að bíða aðeins.

Mikael og Baldur tóku þátt í Svalamótaröðinni í golfi og markmið foreldranna að smita alla af golfbakteríunni miðar vel áfram. Margrét er samt að dala eh. í fótboltaáhuganum mömmu en það hefur eh. með pikk og pot á vellinum að gera. Gabríel var forritaður frá fæðingu eins og hinir enda er uppáhalds - dótið hans bolti og golfkylfa og er hann 2-3 tíma á dag berjandi (slá) kúlur, snuddur eða blöðrur með golfkylfunni sinni.

Við hjónin förum á Íslandsmót + 35 á fimmtudaginn. Þriggja daga golfmót. Mikil spenna í húsinu. :)

Ásamt barnauppeldi, kennslu í sumarskólanum erum við hjónin að skipurleggja Húnavökuna í 5. skiptið held ég, frekar en sjötta. Dagskráin er að smella saman.

Mikael útskrifaðist á leikskólanum í síðustu viku og var langþráður draumur að nálgast. ,,Skólinn" núna er spurt á 2 klst fresti. ,, Mamma hvernær byrja ég í skóla" eða hvenær kemur september " þá á hann afmæli. .) Krúttið..
 
En alla daga fer ég með krúttin á golfvöllinn, Mikael, Margréti, Baldur og Leó, þau æfa golf og svo æfi ég mig í leiðinni.


En núna er ég að sitja yfir prófi í Sumarskóla FB. 

Over and out..

Húdý

» 14 hafa sagt sína skoðun

22.03.2011 10:14:06 / huldab

Prins er fæddur

Þann 11.3 11 fæddist óskaprinsinn. Maron bróðir og Gréta mákona eignuðust sinn fyrsta unga. Hann var 15 merkur og 55 cm. Ég kíkti á hann síðasta föstudag. Ægilega sætur. Hann veit greinilega ekki hvað hann er að leggja út í .. :) öll þessi frændsystkin. Hann verður sennilega klæddur í kjól af frænkum sínum á skaganum og þegar hann kemur í strákahópinn í bænum verður Gabríel voðalega glaður að hafa einn sem hann getur ráðið yfir.

Markmiðið er að blogga a.m.k einu sinni í mánuði.
Þessi mánuður er búinn að vera nokkuð strembinn. Mikið af fundum, er í 5 foreldraráðum og 2 framkvæmdaráðum og Reykjavíkurborg (með sameiningaráformum) hefur tryggt það að kerlingin hefur verið á fundum lon og don.

Gabríel er að verða, nei er orðinn 16 mánaða og er eins og herforingi, bendir út um allt, segir ekki mikið en stendur og bendir. Litla krúttið, er voðalega góður, sefur nær 14 -16 tíma á dag. Hann hefur meira verkvit en hugvit og það nýjasta hjá krúttinu er að klifra upp á stóla, þaðan upp á borð og fikta í ljósunum. Svo þegar við nálgumst hann þá spennist hann allur upp og þá er voðinn vís. Þannig þegar við sjáum hann upp á borði þarf að nálgast hann mjög rólega svo hann detti ekki niður. Allir á heimilinu stunda grindarhlaup af kappi þar sem hlið eru nú fyrir öllum stigum og litla klósettinu niðri (því kauði hefur gaman af því að sulla í klósettinu). Heimilisfólk var búið að fá pistilinn frá foreldrum. MUNA eftir að loka setunni, og slökkva ljósin. Svo sá ég hann opna setuna, henda símanum hennar mömmu sinnar í klósettið og sulla.. OMG.. svo LG-inn minn er enn að þorna.

Mikael er byrjaður að æfa fótbolta og finnst það bara gaman. Hann nennir nú ekki alltaf en þar sem hann vinnur sér inn ,,tölvuprik" (5 tölvuprik = 30 mín í tölvunni) fer hann á æfingu. Hann fer nú að ljúka leikskólagöngu sinni í sumar og fara í skóla í haust. Þeir bræðurnir eru saman í herbergi og sofna saman. Þvílík krútt. :)

Baldur ofurdrengur með stóra hjartað, er með grátgenin hennar mömmu sinnar. Hann var á samveru síðasta föstudag og átti að lesa ljóð eftir sig. Hann bað mig um að segja kennaranum að hann gæti ekki lesið. Ég spurði ,, afhverju"  Baldur: sko.. mamma ég fer bara að gráta þegar ég les eitthvað sem ég samdi, þá fara allir að hlægja. ;( svo hann las ekki ljóðið sitt.

Margrét er handboltastjarnan á heimilinu, farin að spila handbolta með 6 .flokk yngri og eldri og síðast spilaði hún með 5.flokki. Hún er í markinu og stendur sig vel.
Hún er líka að standa sig vel í skólanum. Hún bað mömmu sína um að hjálpa sér í síðustu viku með heimanám og við lærðum til að verða 23.00 svo sagði hún.. ,,Jess.. nú sleppi ég að læra í næstu viku".. :)

En annars gengur heimilið sinn vanagang, síðustu 5 vikurnar hafa pestar herjað á krúttin og við hjónin + Ásta frænka + mamma púslað þessu saman.

Ég vona að pestirnar séu hættar að heimsækja okkur og það fari að vora.

Yfir og út.

golfsjúklingurinn :)

» 23 hafa sagt sína skoðun

13.02.2011 22:43:22 / huldab

Ákveðin að vera...

Hæ..

Ótrúlegt ef maður dettur í blogggírinn þá getur maður ekki hætt.  Helgin var viðburðarrík. Við hjónin fórum í leikhús að sjá ,, Fjölskyldan" mikið er þetta magnað leikrit. Margrét og Sigrún Edda voru þar með þvílíkan stórleik. Þetta er tæplega 4 tíma sýning og manni leiðist ekki eitt augnablik. Halli stóð sig líka frábærlega. Við hjónin fórum ,,út að borða áður eða tókum eina pylsu í leiðinni í leikhúsið á N1 í Ártúnsbrekkunni,, svakalega rómó.. :) :).. Besta pylsa sem ég hef smakkað.

Á laguardaginn var svo fótboltamót hjá Baldri. Við Baldur fórum á það en um morguninn fórum við Baldur, Leó frændi og Margrét að pútta eða á púttmót í GKG.

Júróvision var á sínum stað og við fjölskyldan horfðum á með spenningi. Margrét og Baldur fengu að kjósa það sem þeim fannst best og kusu þau ,, Aftur heim". Þvílík fagnaðarlæti brutust út þegar lagið svo vann. :) :)

Í dag fórum við hjónin svo að breyta hjá okkur, húsgögnin í stofunni, borðstofunni og sólstofunni voru færð til og ég held að píanóið hafi farið í öll horn í stofunni í dag. Sjónvarpið var fært til því ,,aðal" sjónvarps ,,dótaríið" er á öðrum vegg en það var. Jahh.. við skulum orða það að sjónvarpið er komið á þann vegg sem það á að vera skv. teikningu. :)

Það er því nokkuð rýmra og mun betra fyrirkomulagið í stofunni. :)

Auperin okkar er að fara heim í nótt svo ég vakna um 3.50 til að keyra hana á Flugrútuna. Sumartútturnar geta ekki keyrt hana til Keflavíkur. Hún ætlaði að vera í 9 mánuði en tórði í 6 vikur hjá okkur.. :) kannski út af þvottafjallinu en ég held að almenn heimþrá og kærasta-söknuður hafi verið aðalástæðan. Hún spurði samt hvort hún mætti koma aftur í sumar.. Svo við höfum kannski ekki verið svo alslæm við hana.. :)

Í dag var kökudagurinn mikli, ég og Mikael fórum í mömmuklúbb hjá GG og átum yfir okkur af gómsætum kökum. Þetta var nú mömmuklúbburinn hans Gabríels líka en þar sem mætingin (í mömmuklúbbinn) var um miðja nótt fyrir Gabríel fékk hann að sofa aðeins lengur.  Hann sofnaði sem sagt klukkan 12.30 og um 15.00 þegar við fórum var hann STEIN -sofandi.  Við vorum ekki lengi í mömmuklúbb, misstum sennilega af öllu slúðrinu því við fórum strax í afmæli en Margrét og Gabríel fengu að fara með. NB. Gabríel var vakinn til að koma með.. :) :):) krúttið.. En þegar við komum í veisluboð Nönnu  þurfti maður aðeins að jafna sig í maganum áður en meiru var troðið ofan í hann.. :) en veislurnar hennar Nönnu eru eins og litlar Fermingarveislur eða eru bara eins og Fermingarveilsur, og þegar hún fermir fyrst verður það ekkert mál því hún er búin að æfa sig 3 x á ári í mörg ár.. :) :) :) 
 


Kveðja

Húdý.. :)

» 24 hafa sagt sína skoðun

11.02.2011 16:03:32 / huldab

Febrúarblogg - janúar gleymdist

Heil og sæl.
Þið eruð eflaust orðin þreytt á mér  að ég segi ,, það er búið að vera svo brjálað að gera" svo ég ætla ekki að segja það.. En koma með smá fréttir af fjölskyldunni.

Gabríel er að verða 15 mánaða eftir viku og drengurinn braggast vel. Hefur meira verkvit heldur en hugvit sem sagt, klifrar upp á allt og hefur ekki vit á því að hann geti meitt sig. Tripp trapp stóllinn hans Mikaels má til dæmis ekki vera á gólfinu þá er sá litli með ,,one mission" fer upp á stólinn, upp á eldhúsborð og fiktar í eldhúsljósinu. Ég prófaði að taka hann niður af borðinu, setti hann á gólfið. Þá hljóp hann hringinn upp í stól, upp á borð. Svona gekk þetta í 8 skipti. Þannig að stóllinn er bara upp á borði og er þar..

Hann hefur tekið ástfóstri við Latabæ og klæðist stórum, ég meina stórum fötum af bróður sínum til þess að vera með íþróttaálfinn framan á sér. Segir svo bara VÓOOÓOOÓOO...

En árið í fyrra var nú fljótt að líða bara eins og einn mánuður. Síðast skildum við þar sem Tóta systir var fertug, við komum henni sem sagt á óvart og hún grét ,,alvörunni" tárum þegar hún sá okkur birtast í stofunni.

Við fjölskyldan fórum svo til Orlando þar sem við höfðum það gott yfir jólin. Við golfuðum eins og við gátum.

Svo koma spurningar eins og.....

,,Hvernig gátuð þið golfað" ?
,,Fór barnapía með ykkur" ?
,,Voru börnin skilin eftir ein"?
,, Fóruð þið ein út um jólin"
,,Hver passaði börnin"

Eins sem ég ætla að gefa út er að við golfuðum mikið.. :)

Mér var hennt út af golfvellinum (fékk frávísun), fórum i sund, hittum Mikka mús og skemmtum okkur vel.

Árið er búið að plana. Fylkir og GSÍ sér um helgarnar hjá okkur en við hjónin ætlum nú að reyna að komast burt í smá golffeð í apríl.. :)

Kveðja
Húdý og herinn


» 22 hafa sagt sína skoðun

24.11.2010 09:15:31 / huldab

Fertug og fær í allt..

Heil og sæl.





Blogg dagsins eða kannski blogg vikunnar er fyrir stóru systur mína sem ég hef haft sem fyrirmynd síðan ég fæddist. Þórunn Anna  :) hún verður 20 + 20 á laugardaginn. :) Hún fæddist 27.nóvember 1970 og þegar ég kom í heiminn '73 þá var ég fljót að brjóta öll viðmið sem hún hafði sett. Hún var ,,besta barnið" sat og var svo góð. Pabbi kenndi henni að labba 18 mánaða því hún var ekkert að flíta sér að labba. Þegar ég svo birtist nokkrum mánuðum seinna þá fékk ég stimpilinn ,, tryppið" því ég byrjaði að labba 9 eða 10 mánaða (mamma segir nú 7 mánaða en ég trúi því ekki). 



Systir mín var mjög góð við litlu systur sína leyfði mér að druslast með, henni og Helgu Páls sem bjó á móti okkur á Furugrundinni. Stundum var ég nú of lítil fyrir leikina og rotaðist einu sinni. Það var nú ekki af því leikurinn var svo hættulegur.. Nei.. ég var mamman í mömmó, Helga Páls og Tóta voru litlu börnin. Ég kem inn og held á bláum Ópal sem var sjaldséður á okkar heimili. ,, Míns heldur á Ópal og ykkas á að ráðast á mína".. Helga tók þetta bókstaflega og snéri mér við og hausinn á mér danglaði í vegginn og ég rotaðist.. 



Á gjelgjunni vorum við systur lítið saman. Held að það hafi verið út af því hversu skapvond ég var.. Fúl og alltaf að stela fötum af stóru systur. Ég var svo skæð að hún þurfti að setja hengilás á fataskápinn sinn. Ekki fannst mér nú neitt af því að taka föt og föt en ég skildi það mun seinna þegar ég varð eldri.  :) átti alltaf eftir að biðjast fyrirgefningar. Svo fyrirgefðu elsku Tóta.. :)

Við vorum örugglega fúlar við hvor aðra alla gelgjuna og rifumst mikið, en það lagaðist skyndilega eftir ein slagsmálin í eldhúsinu þegar hún var 19 ára og ég 17, þá barði hún mig með þvottabursta. Þá var hún ólétt af Ernu sætu.


Eftir að hún átti Ernu sætu varð Húdý frænka eins og fluga á skít heima hjá Tótu systur.. :) :) Við urðum bestu vinkonur aftur. Minn helsti trúnarðarvinur, besta vinkona. Hún hitti svo Sturra sinn og þau eiga 4 gullmola saman, búa í Bretlandi og ég hlakka til að hitta þau eftir jól

Elsku Tóta systir til hamingju með þennan STÓRA merka áfanga í lífinu.. J Ömurlegt að vera á fróni meðan þú átt stórafmæli..... I‘promisss  ég LOFA að koma í 80 ára afmælið þitt...

Þessi mynd er tekin árið 2004. Við fjölskyldan heimsóttum þau til HULL. Hér er systir mín með mín krútt Baldur og Margréti. :) :):)





» 23 hafa sagt sína skoðun

23.11.2010 14:32:22 / huldab

Foreldra- mælirinn fullur.

Hæ hæ..

Bara ekkert að gera.. (svo ég blogga). Hef alveg næstu 13 mínútur til að blogga..:)

Var hugsað um öll þessi forledraráð, foreldrafélög sem eru í boði og núna og ég held að ég sé búin að fylla minn mæli.. allavega er hausinn á mér fullur.. :)

Sko ég er í foreldraráði 6.flokks kvenna í handbolta, foreldraráði 6.flokks karla í fótbolta, foreldraráði 5.flokks kvenna í fótbolta, foreldraráði leikskólans, framkvæmdaráði Ártúnsskóla og þetta er farið að renna allt saman.. :) :) hiiiii... nei nei.. þarf bara að skipuleggja mig. Ég er nefnilega þessi týpíska já manneskja segi já við öllu, svo ég brá á það ráð að senda Einar á fund foreldra hjá handboltanum hjá Baldri ... og viti menn hann er í forledraráði handboltans.

Nú fer að koma að þessum kosningum um helgina og ég tók prófið á www.dv.is til að athuga hvaða kandidatar væru nú að berjast fyrir mínum skoðunum. Ég skrifaði svo 5 númer niður og ætla að kjósa þau.

Krúttkubburinn er hættur á brjósti, loksins segja sumir en hann beit sig út úr brjóstagjöfinni. Mamman var blóðug eftir strumpinn sem fannst ægilega fyndið að heyra mömmu sína æpa á hann eftir bit. Guffatennurnar og brosið komu þá og svo .. hhheeeeehhheeee.. ægilega fyndið.. En nú fær hann bara pela. :) nú er komin vika síðan hann hætti svo það er ekki aftur snúið.

Síðasta kennsluvikan.

Vá hvað er gott að þetta er síðasta kennsluvikan, það er að segja þessi vika og svo mánudagur og þriðjudagur í næstu viku.  Efni vetrarins er að klárast og margir tilbúnir fyrir próf. í desember kemur Gyða Sól í heimsókn og ætlar að mála og ditta að heimilinu fyrir jólin.

Jæja nú er ég að fara að kenna..

Húdý og herinn...

» 26 hafa sagt sína skoðun

19.11.2010 09:29:53 / huldab

Haustið

Heil og sæl.



.

Váa...hvað er langt síðan ég bloggaði síðast..


Það eru allavega nokkrar vikur síðan. Jæja..hvað er að frétta? Það er allt gott að frétta. :)

Þegar ungarnir eru orðnir 4 á heimilinu þá er eins og við hjónin rekum lítið fyrirtæki. Vikan er eitt stórt plan. Stundum klikkar eh. eða gleymist, æfing hér og þar.. eða sækja eitthvað (eins og gerðist í gær).

Þegar ég er spurð ,, hvað áttu mörg börn“? þá fylgja spurningar eins og ..

,, eigið þið 4 börn saman eða á hann tvö og þú tvö“?

,, eruð þið í sértrúasöfnuði“?

,, eru þau öll samfeðra“?

,,Keyrið þið um á rútu?"

En um daginn á kaffistofunni í vinnunni fékk ég athugasemd sem ég vil gjarnan deila með ykkur.

Ég sat hjá golfurunum í vinnunni og þeir voru að tala um golf (eins og vanalega). Svo barst tal um það að ég væri að æfa golf 3 x 1klst í viku. Þá gekk ein kona fram hjá mér.. spurði ,, ert þú í golfi“? já sagði ég.  ,, þú ert ömurleg móðir“. ! ;) ;)

Á golfæfingu á miðvikudaginn vorum við að setja okkur markmið fyrir næsta sumar og áttum að skrifa hvað við þyrftum að fórna til þess að vera í golfinu. Ég gat ekki skrifað neitt. Ég er kannski bara svona slæm móðir? Finnst ég ekki vera að fórna neinu... frekar fá fleiri gæðastundir með fjölskyldu og manninum mínum?! Verð næsta sumar með Margréti, Baldri, Mikael og Einari úti á velli!


Í gær fór mamman með ungunum sínum í viðtal hjá umsjónarkennara.

Margrét fékk frábæran vitnisburð og frábærar einkunir, 10 í ensku, 9,5 í íslensku og stærðfræði. Kennari Margrétar er alveg frábær og er að byggja hana upp.


Baldur fékk einnig frábæran vitnisburð og frábærar einkunir, fékk ágætt í öllu. Kennarinn hans sagði að hann yrði næsti ,,Hugleikur Dagson". Hann teiknar heilu myndasögurnar og er mjög listrænn. Hann samdi fyrsta ljóðið sitt um daginn. Hvatti hann til þess að halda þessu áfram.

Mikael hefur veirð á sundnámskeiði og byrjaði að æfa fótbolta í haust. Já.. sundnámskeiðið gegnur vel en í fótboltanum þá er hann stundum ekkert að fylgjast með boltanum, en það kemur.

Krúttkubburinn Gabríel var 1.árs í gær. Mikael varð fyrir miklum vonbrigðum því  hann hélt að Gabríel myndi tala þegar hann yðri 1.árs. Garbíel fékk keyptar piparkökur í afmæliskaffi og við Mikael sungum afmlæissönginn fyrir hann.

Gabríel fór að labba um 10 mánaða og það er yndislegt að sjá hann labba, hann er svo smágerður. Hann sefur 4-5 tíma hjá dagmömmunni á hverjum degi. Elskar að leika sér í eldhúsinu hans Mikaels.

Við hjónin erum nær búin að kaupa allar jólagjafirnar, (eigum nær bara börin okkar eftir). Búin að láta gera jólakortin. Desember verður helgaður jólahaldinu og afslöppun.. (ég á eftir að sjá það.!. ).


Bless í bili..


Húdý og herinn..




 


» 32 hafa sagt sína skoðun

31.08.2010 22:08:44 / huldab

Ástarsaga foreldra minna sem áttu 45 ára brúðkaupsafmæli 17.júní sl.

Fékk forsetaleyfi til að giftast

Grein frá 2005.

Aðeins 16 ára gekk Erna Kristjánsdóttir í hjónaband með Baldri Árnassyni sem var þá 21 árs. Þau eiga 40 ára brúðkaupsafmæli hinn 17. júní nk.

Hinn 17. júní 1965 gengu í hjónaband þau Erna Kristjánsdóttir og Baldur Árnasson. Þau eiga því 40 ára brúðkaupsafmæli næsta þjóðhátíðardag. En hvers vegna skyldu þau hafa valið þann dag sem brúðkaupsdag?

"Ég held að hann hafi orðið fyrir valinu því við ætluðum ekki að gera neitt í tilefni af brúðkaupinu, ekki halda veislu, heldur njóta dagsins í samfélagi við alla þá sem héldu upp á þjóðhátíðardaginn. Okkur fannst þetta skemmtilegur dagur," segir Erna, en þau hjónin eru búsett á Akranesi.

Hvar skyldi svo brúðkaupið hafa farið fram?

"Við giftum okkur í skrúðhúsi Dómkirkjunnar í Reykjavík, við vorum þá bæði búsett í höfuðborginni," segir Erna.

"Við kynntumst á heimili þar sem við vorum alin upp. Systir mín tók mig að sér þegar ég var 12 ára, við höfðum misst móður okkar en faðir okkar hafði ekki bolmagn til að halda saman hópnum. Við vorum sex systkini og ég var næstelst, okkur var komið í tímabundið fóstur hér og þar. Maðurinn minn sem síðar varð leigði herbergi hjá systur minni og manni hennar, en þeir voru frændur."

Allt var brjálað

"Þegar ég var 15 ára en hann tvítugur byrjuðum við að skjóta okkur saman. Þetta þótti mikið hneyksli á þeim tíma. Systir mín var hreint ekki ánægð með þetta og rak piltinn út en sú aðgerð gekk ekki. Við hittumst áfram svo enginn vissi, t.d. þegar ég var að fara í skólann. Ég stalst að heiman eitt kvöldið, átti að kaupa sígarettur fyrir systur mína, en ég hitti hinn útvalda fyrir utan sjoppuna og fór með honum og kom ekki heim fyrr en daginn eftir. Þá mætti mér heil hersing af hneyksluðu fólki, þar á meðal prestur. Allt var brjálað. En við gáfum okkur ekki og héldum áfram að hittast.

Það endaði með því að ég varð ófrísk að frumburði mínum, dreng sem nú er að verða 40 ára. Ég var nýlega orðin 16 ára þegar hann fæddist. Ég fékk forsetaleyfi til þess að giftast um sumarið og drengurinn var skírður um leið."

Fóru á bílaleigubíl í brúðkaupsferð

En voru þá engin veisluhöld?

"Nei, við giftum okkur og létur skíra, tengdamóðir mín var ein viðstödd sem svaramaður fyrir utan prestinn. Maðurinn minn hafði tekið bíl á leigu og við fórum út að keyra eftir giftinguna. Tengdamamma passaði barnið en við enduðum uppi á Akranesi um kvöldið og brúðkaupsnóttinni eyddum við á heimili frænku minnar þar. Daginn eftir fórum við norður á Sauðárkrók og vorum þar í einn sólarhring. Við höfðum lofað að taka þar unga móður með nýfætt barn með okkur í bæinn aftur og gerðum það.

Ég var ekki neitt óánægð með þessa undarlegu brúðkaupsferð, það þótti bara gott á þessum árum að komast út fyrir bæinn."

Sótti leyfisbréfið til að komast inn í Glaumbæ

En í hverju varstu við brúðkaupið?

"Ég hafði fengið konu suður í Hafnarfirði til að sauma á mig sléttan, hnésíðan kjól, upp í háls og stuttan jakka utan yfir, með stórum tölum, þetta var í tísku þá. Maðurinn minn var í teinóttum jakkafötum, dökkum. Við vorum voða fín. Ég var með blómvönd, ekki brúðarvönd, heldur bara venjulega keyptan blómvönd. Engar myndir voru teknar af okkur á brúðkaupsdaginn, við hugsuðum ekkert um slíkt, vildum bara gifta okkur, nógu mikið vesen hafði verið að fá leyfi hjá Forsetaembættinu til að gera það.

Fyrsta myndin sem tekin var af okkur saman var í september sama ár. Þá bauð maðurinn minn mér í Glaumbæ en ég fékk ekki að komast þangað inn með honum nema að sýna að ég væri gift. Þá varð ég fara heim aftur til að sækja leyfisbréfið og þá fékk ég að fara inn. Þetta kvöld var tekin mynd af okkur við borðið okkar í Glaumbæ."

Eignuðust fimm börn

En hvað gerði maðurinn um þetta leyti?

"Hann var nýlega hættur á sjónum og var byrjaður að vinna hjá BM-Vallá. Ég var bara heima með barnið, mér fannst ægilega gaman að vera móðir. Ég hætti í skóla þegar ég varð ófrísk, mér tókst þó að ljúka skyldunáminu.

Við hjónin eigum fimm börn svo ég fór ekki í skóla fyrr en þau voru öll fædd. Þá lærði ég svæðanudd og snyrtingu hjá Margréti Hjálmtýsdóttur. Ég starfa þó ekki við það heldur við aðhlynningu á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, en við höfum verið búsett á Skaganum í nærri 45 ár."

Eru börnin þín gift?

"Þrjú þau elstu eru gift, en það stendur fyrir dyrum brúðkaup í sumar, yngsta dóttir mín, Katrín Rós Baldursdóttir, sem er 23 ára, ætlar að gifta sig hér í Akraneskirkju hinn 4. júní. Brúðguminn tilvonandi er Reynir Leósson.

Þau ætluðu reyndar að gifta sig 17. júní eins og við forðum en presturinn var ekki við á þeim tíma. Hún ætlar að halda stórt brúðkaup eins og systkini hennar. Ég hef tekið þátt í undirbúningi brúðkaupsveislnanna og reikna með að sauma brúðarkjólinn á dóttur mína fyrir brúðkaupið í sumar. Við erum ekki enn búnar að velja snið eða efni."

Saumaði brúðarkjóla á dæturnar

"Ég saumaði brúðarkjóla á elstu dæturnar og hef líka saumað kjóla fyrir fegurðarsamkeppnir sem dóttir mín Katrín Rós hefur tekið þátt í og líka fyrir aðrar stúlkur sem tekið hafa þátt í slíkum keppnum hérna á Akranesi. Ég hef raunar saumað nánast allt milli himins og jarðar, ef svo má segja."

En hvað á að gera í tilefni af 40 ára brúðkaupsafmælinu?

"Við erum ekkert farin að hugsa svo langt. Mest er verið að hugsa um brúðkaupið þessa dagana. En líklega látum við eftir okkur að fara til Kanada í ferðalag með karlakór sem maðurinn minn er í. Það verður sennilega hin síðbúna brúðkaupsferð."


Viðtal við mömmu í mogganum fyrir 5 árum síðan


» 24 hafa sagt sína skoðun

22.07.2010 23:21:20 / huldab

Húnavakan og útilegan góða....

Húnavakan og útilegan góða. />

Vá hvað síðustu dagar hafa verið frábærir. Húnavakan gekk alveg rosalega vel, við fórum norður á fimmtudag fyrir Húnavöku. Bæklingur sem við hjónin höfum verið að vinna við síðustu mánuðina, ég að safna auglýsingum og Einar að setja hann upp  á kvöldin, var komin í hús og allt klárt.

Föstudagsmorguninn vöknuðum við snemma og fórum að undirbúa kvöldið. Bærinn var skreyttur og karlinn fór að setja upp útisviðið með Halla og Maroni bróður sem var kominn norður. 

Dagskráin byrjaði með sundlaugarpartý sem var alveg frábært, Mummi (sem á laugina skv. Mikael) gaf grænt ljós á tónlist og skemmtilegheit. Eftir það var Hellisbúinn í félagsheimilinu og svo kom Bjartmar strax á eftir. Þvílíkt gaman.

Á laugardeginum fórum við hjónin snemma á fætur til að taka á móti 50 ungmennum sem spreyttu sig í hinum vinsæla Microhúni (söngkeppni barna og unglinga) en dómnefnd átti í mestum vandræðum að velja 5 keppendur í yngri flokk og eldri flokk  í úrslit. Dagskráin á laugardeginum byrjaði svo um eitt  og gekk hún vel. Veðrið lék við Húnavökugesti og Mikael skemmti sér alveg konunglega í hoppköstulunum og í hringekjunni.

Litla krúttið fékk nú ekki mikla athygli frá foreldrunum en hann var mjög sáttur með daginn. Svo skutumst við heim í kvöldmat og fórum svo strax á kvöldvökuna til að sjá til þess að allt færi sómasamlega fram. Einar stjórnaði kvöldvökunni og hún hefur aldrei verið eins fjölmenn!

Mikael hitti átrúnaðargoðið sitt (Góa) og gjörsamlega einokaði hann. Held að Gói viti allt um okkur og okkar fjölskyldu. Mikael bauð honum í afmælið sitt og vonast eftir að hann komi! Hrikalega sætt. Jói Hjaltasson var með okkur líka hann er nú meira krúttið. Hann var farin að kalla mig Hulda-mamma á föstudeginum.  Hulda mamma mátti bara hjálpa honum og vera með honum.. litla krúttið. Hann er svo hrifin að Mikka. Þeir komu með á kvöldvökuna og voru hrikalega góðir. Gabríel var einnig með okkur og var eins og ljós.  

Krúttin ( Jói, Mikki og Gabríel )  fóru svo heim um 22.00 til þess að mamman gæti nú farið að standa vaktina í miðasölunni á Sálarballið. Við Gréta hans Marons vorum í miðasölu. Þetta var hörkuball.  Svo endaði kvöldið á því að við hjónin fórum að tína upp flöskur og bjórdósir fyrir utan ballstaðinn. Við drusluðumst svo inn að sofa um fimm um morguninn. Gabríel var ekki ánægður með mömmu sína að vakna ekki til hans en til allra hamingju bjargaði ofuramman á Blönduósi litla stráknum. 

Katrín systir bauð okkur í útilegu  og sendi ég henni mjög snubbótt sms til baka að það gæti bara vel verið.  Ég gleymdi svo að hringja í systur mína á sunnudagskvöldinu og líka á mánudagsmorguninn. Svo hún hélt að við kæmum ekkert. En þá vorum við búin að ákveða að skella okkur með í Skaftafell. 

Jahh.. ég skal segja að ég ,,Trikkaði Einar í útilegu“ hann er ekki þekktur fyrir að vera mikill útilegumaður en hann var alveg sáttur að koma í útilegu ef hann fengi að taka golfsettið með.. Ég sagði alveg.. já já  auðvitað…  Svo fórum við að pakka, þið vitið 4 börn og Viktoria og við sem sagt 7 manns í 7 manna bíl og ALLUR FARANGUR…. Þegar Einar var búin að pakka öllu, án þess að koma 4 sængum fyrir og koddum og 3 töskum.. sagði hann. Það er ekki pláss fyrir golfsettin. Svo þá varð úr að þau voru skilin eftir. />

Við keyrðum í Skaftafell tæplega 4 tímar.. og þegar við loksins komum var eins og bíllinn hafi sprungið því þegar við opnuðum bílinn þá hrukku út 4 sængur og allir.. Hhiiiiiii … hrikalega fyndið.. J en við skemmtum okkur hrikalega vel .. það var rosalega gott veður, við löbbuðum að Svartafossi, lékum okkur þar og vorum með smá pik-nik. Svo fóru allir að stökkva í smá læk sem er nálægt tjaldstæðinu. Lékum okkur í Kubb. Já best að segja að við Einar RúSTUÐUM Katrínu og Reyni í Kubb.  Við gerðumst svo ferðamenn á miðvikudaginn og keyrðum í Jökulsárlón og fórum í bátsferð um lónið. Algjör snilld. Síðan var farið í sund á Vík en við ætluðum að stoppa á Kirkjubæjarklaustri en þar var lokað vegna kúks í lauginni  (eins og stóð á miðanum). Svo stoppuðum við á Skógarfossi og skoðuðum fossinn. Stoppuðum svo á Hellu og fengum okkur pizzu og keyrðum svo heim. Niðurstaðan frábær ferð með frábærum ferðafélögum eftir frábæra Húnavökuhelgi. Krakkarnir alveg rosalega ánægðir með tjaldútileguna. />

>

Kveðja />

Húdý útilegukerling   />


» 33 hafa sagt sína skoðun

19.07.2010 00:37:49 / huldab

Húnavaka og fleira

Heil og sæl.

Nú hefur kerlingin loksins tíma til að blogga. Eftir miðnætti eftir stóra og vel heppnaða helgi. Við hjónin höfum skipulagt Húnavöku - bæjarhátíð Blönduósinga í nokkur skipti og tókst hún alveg rosalega vel núna. Allir bæjarbúar tóku þátt og frábær stemning í bænum.  Við hjónin fórum með yngri deildina (Mikael og Gabríel með okkur) en Margrét var á Símamóti og Baldur fékk að druslast með Leó frænda og fjölskyldu.

Baldur var ,,plataður" með frábærri dagskrá, Húsdýragarður á föstudaginn, ströndin á laugardaginn og sund á sunnudag: sem hann féll fyrir. En Húsdýragarðs - ferðin endaði á slysó eftir 15 mínútna veru  á föstudaginn síðasta. Þá voru þeir frændur svo spenntir að fara í fallturninn að æslagangurinn að komast aftur í röðina, eftir fyrstu ferð endaði með skurði á gagnauga Baldurs ,,Emil". Svo Katrín systir fór með kauða á slysó í 20 stiga hita. :)


Margrét var hjá Brynju frænku sem passaði hana hrikalega vel og fylgdi henni á hvern leik í Símamótinu og lenti Margrét og liðið hennar í 7. sæti í sínum riðli.

Um daginn þá sótti ég um Bæjarstjórastöðu á skaganum. Það er alltaf verið að gagngrýna konur að þær sæki ekki um svona stöður og eftir einn golfhringinn á skaganum ákvað ég, nú gamli skagamaðurinn að sækja um.  Listinn var birtur um helgina og Púfffffff.... :) hhhhiiiii... það eru allir með svaka titil... já og  kannski ekki... ef maður les í listann.. það eru nokkrir sem eru titlaðir eftir starfsheiti, eða fyrrverandi starfsheiti og sumir eftir menntun. Svo mitt starfsheiti kom fram Hulda Birna Baldursdóttir: Kennari.. sem er bara fínt en ég er fyrst viðskiptafræðingur, MS c í stjórnun og með kennsluréttindi, en starfa sem kennari. En listinn lítur þannig út að það eru stórlaxar á honum og svo kemur kennari og svo..... öryrki.. :)

En góða nótt elskurnar..

Húdý BÆjó.. :)



» 25 hafa sagt sína skoðun

29.06.2010 19:13:10 / huldab

Júní - blogg

Heil og sæl..

vá hvað tíminn er fljótur að líða. Júní er búin að líða hratt, jahh... eða mikið að gera á bænum. Hún Viktorija okkar kom í byrjun júní og kakkarnir voru ánægðir að sjá stóru systur, eins og hún er kölluð hjá okkur. Pabbinn byrjaði í feðraorlofi í júní og hefur haft mikið að gera enda mamman að kenna öll kvöld í júní frá 17.00 til 22.00.

Foreldrarnir hafa nú golfað samt eitthvað aðalega á morgnanna og höfum við farið út snemma því stundum byrjar skutl og sækja um 10.00.

Margrét hefur verið dugleg á leiklistarnámskeiði og lauk því núna á sl. föstudag með leiksýningu. Við fórum öll fjölskyldan ásamt Katrínu systur og svo komu amma og afi af skaganum á sýninguna. Hún ljómaði eftir sýninguna og stóð sig alveg rosalega vel.

Baldur fór á fótboltamót á skaganum og lentu þeir í 4 sæti af 144 liðum mótsins. Baldur skemmti sér alveg konunglega, enda þekktur fyrir það að vera góður strákur utanvallar sem innan.

Mikael bíður eftir að komast í frí og spyr á hverjum morgni hvort það sé frí þann daginn.

Margrét og Baldur eru komin í GKG eða Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar og líkar vel. Þau fara á æfingar 3 x í viku og tóku þátt í sínu fyrsta golfmóti í síðustu viku. Pabbinn var ,,kaddý" hjá þeim og tók þetta yfir 5 klukkutíma.

Margrét hafði orð á því á sunnudagsmorguninn þegar mamman var að fara út í golf með pabbanum.. ,,mamma nú skil ég hvað er gaman í golfi".... :)

Nú sit ég yfir prófi í FB og mikið er ég glöð að Sumarskólanum sé lokið, þá kemst ég loksins kannski bráðum í frí (Húnavakan tekur við).. eða það fækkar allavega verkefnum sumarsins..

Knús og kossar

Húdý og hollin 2.


» 23 hafa sagt sína skoðun

16.05.2010 23:44:21 / huldab

Golfsumarið byrjað..

Heil og sæl..


Þessi helgi var já, viðburðarík. Við fjölskyldan fórum á leikrit í Ártúnsskóla hjá Baldri á föstudaginn og drengurinn stóð sig rosalega vel.

Við Gabríel fórum svo og hittum tengdamömmu í hádeginu. Yndislegt.. :) við borðuðum á Kryddlegin hjörtu á Skúlagötu.

Þegar allir voru komnir heim af fótboltaæfingu og búnir að borða var kósýkvöld hjá okkur strumpunum, pabbinn brá sér í golf.

Á laugardaginn byrjaði svo golfsumarið. Við Gabríel fórum á kvennamót GR í Þorlákshöfn.  Já ég er svona klikkuð ég tók litla barnið með mér á mót. Á leiðinni í rútunni var mér samt ekki alveg sama...(fóru að renna á mig tvær grímur). Byrjum á byrjuninni. Anna Björk ofur skipuleggjari hjá GR -  konum, golfvinkona mín sendi mér SMS þegar ég var í Britten og spurði hvort ég ætlaði ekki á mótið .. og ég sendi til baka. ,,en ég verð að taka súpulínus með mér" svo fékk ég SMS, þú ert í holli með skvísunum.. og svo mættum við Gabríel.
Svo þegar rútan var lögð af stað þá fór ég að efast hvort ég væri nú að gera rétt.. að fara með hann á mót.. ,,hvað ef hann öskraði allan hringinn? (jahh þá myndi ég bara fara aftur upp í skála)"
Þegar við mættum í rútuna dundu spurningarnar:

,,ÆTLAR þú með barnið?"
,, Hvar ætlar þú að hafa barnið á meðan þú spilar"
,,Juuuu... hvernig ætlar þú að hafa barnið með þér"..

Sem betur fer var bara hálftími til Þorlákshafnar svo ég hafði ekki tíma til að hætta við og jú ég var komin í rútuna, með bílinn minn á Korpunni svo Einar gat ekki komið og náð í okkur.

Þegar við nálguðumst Þorlákshöfn var Gabríel orðin þreyttur. Honum var skellt á brjóst, settur beint ofan í GRACO kerruna, mamman gerði sig klára, setti PING settið á bakið og byrjaði.
15 holur liðu mjög hratt (samt 4 1/2 klukkustund). Þá lentum við í smá bið og ég greip tækifærið í +10 m/s reif barnið upp og hann fékk smá að drekka. Hann vaknaði ekki einu sinni við það. Við kláruðum hringinn og hann svaf.
Við komum upp í skála og ég vakti hann til að fá smá meira að drekka og fá nýtt á bossann og svoleiðis. Áhyggjurnar af grátandi barni allan hringinn voru horfnar.

Þá komu þessar yndislegu konur með setningar eins og...

,,JUUUU var hann með þér????   allan tímann.... ,, já "
,, Hvernig varstu með barnið með þér.. "  hvar var settið."..
,, Þú ættir nú bara að fá verðlaun" þú ert algjör hetja"..

Satt að segja þá fannst mér æðislegt að komast í golf. (er svo húkkkt - golfveira). En ég er engin hetja. Við Gabríel erum búin að æfa okkur undir þetta í allan vetur, labba niður í Laugar, fara svo í stöðvaþjálfun (styrk + þol) og labba svo heim eða um 10 km + styrktarþjálfun  svona nánast 2 x í viku. Hann hefur alltaf sofið vært, svo ég var bjartsýn um að þetta gengi vel.

En svona ef ég horfi til baka er þetta náttúrulega svolítið ,,klikk" að fara með barnið í háfaðaroki í golfmót. Þakka fyrir að ekki rigndi og barnið svaf allan tímann. :) :) :) og við fengum ekki einu sinni ,,sperrur".

Í dag fórum við fjölskyldan í Húsdýragarðinn og höfðum það notalegt. Við fórum um hádegið og krúttin skemmtu sér alveg konunglega. Baldur bætti um betur og hjólaði niður eftir með Agli og foreldrum. Við vorum þarna í 4 tíma og höfðum það notalegt.

Við grilluðum dýrindis máltíð. Einar fór svo með eldri - deildina á fyrsta heimaleik Fylkis. Fylkir - Stjörnuna, sem endaði vel fyrir Fylki..

Sem sagt endalaus góð helgi..

Á næstu helgi mun Erna Guðrún sæta frænka útskrifast og vona ég að gosið - verði nú til friðs svo hún Þórunn systir mín komist heim.

Golfiosss...

Sú klikkaða...:) />


» 28 hafa sagt sína skoðun

11.05.2010 20:19:03 / huldab

Góður dagur...

Heil og sæl

Konan og krútt eru sem sagt komin heim úr húsmæðraorlofinu og höfum haft það alveg rosalega gott heima.

Dagurinn í dag hefur verið mjög góður. Er þakklát fyrir að hann fór ekki verr. Margrét lenti í smá slysi í morgun, já eða Margrét og Gabríel. Hún vaknaði um hálf átta í morgun og fékk að taka Gabríel. Hún er rosalega dugleg með hann og er svo góð við hann. Í morgun var hún svo að fara niður stigann með hann (milli hæða) og í næst, neðstu tröppunni dettur hún, og við heyrðum bara dink og mikið öskur og grát.. hjá báðum. Margrét öskraði, og Gabríel grét. Ég tók Gabríel og athugaði hvort hann væri í lagi.. Margrét var algjör hetja.. hún náði að snúa sér í loftinu og tók allt fallið svo hún er með stóra marbletti á höndum og fótum en Gabríel fékk ekki eina skrámu. Hann grét bara því hún grét..
Ég hringdi á Heilsugæsluna og lýsti atvikinu. Hún (hjúkrunarfræðingurinn sem ég talaði við) taldi að honum hafi ekki orðið meint af fallinu miðað við lýsingar móðurinnar.. Úfff... hvað við erum þakklát..

Hinsvegar hefur Margrét verið mjög lítil í dag.. hún grét og grét.. fór í skólann með ekka.. ég fór svo í skólann um 10.00 og knúsaði hana þar sem hún var úti að leika í frímínútum. Ég fór svo inn í stofuna hjá henni, skildi eftir svo miðað til hennar ,,mamma elskar þig rosalega mikið".  Hún er öll að jafna sig. />

Þakka bara fyrir að ekki fór verr, svona atvik kenna manni að fara varlega. />

Knús Húdý />






» 22 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 111716